Drama Queen ;)

*Endalaust drama*

22.10.2007 21:31:48 / margretsa

...Special...

Þetta var bara ágætis helgi :) hitti Betu mína og Hjördísi :haha: hef ekki hitt þær leeeeeeeeeeeengi... svo hitti marh náttúrulega hitt pakkið líka ;) 

Ég þarf að læra að þegja... þetta er að verða vandamál :P nei nei... en þar sem ég kann ekki að þegja þá var ég að vinna um helgina... mína frí helgi.. sem var reyndar alveg ágætt sko.. eftir vinnu á föst var haldið heim á leið eftir eina langa og góða sturtu hérna í Fellabæ.. og það var barinn... þambaði bjórinn til að ná stelpunum en það gekk ekkert... þær svo svo laaaaaaaaaangt á undan mér í drykkjuni ;) en var orðin pínu ölvuð þarna í restina... þegar ég var basla við að labba beint heim ;)  

Vaknaði hress og kát á laug morgunn og fór með stelpunum í hádeginu í Olís í þynnkumat og á þynnkurúnt sem einkenntist á því að skilja Hjördísi eftir hér og þar um bæinn ;) hehe alger snild :P svo var lagt sig og drullast svo á Egs í vinnuna... það var ekkert að gera... Þór var hins vegar að halda upp á 50 ára afmælið sitt svo við Eyrún höfðum þó eitthvað að gera... síðan um 10 leitið fór ég heim á Rey og var alveg að sofna en skellti mér nú samt í sturtuna og heim til strákanna í Party og co.  Síðan var rölt niður á bar og var marh aðeins farinn að finna á sér eftir allt þambið á leiðinni :P en þegar ég kom inn á barinn rann fljótlega af mér...

Það er ekki hægt að fara þarna inn án þess að þurfa að hafa einhvern til að hlaupa til ef pólverji eða einhver útlendingur fer að reyna við þig... allavega þetta kvöld...  við stelpurnar vorum á dansgólfinu og eitthvað að dansa þegar einhver pólverji labbar að Hjördísi og stríkur upp lappirnar á henni og svo kom einhver annar og stríkur klofið á Thelmu:!: mér misbauð þetta og að rann af mér á sekúntuni sem þetta átti sér stað:!:  varð ekkert drukkin aftur.. fannst ég alltaf þurfa að vera að líta afturfyrir mig og tjékka hvort það væri verið að elta mig... rosalega leiðinlegt...

Eftir að barinn lokaði náði ég að dofla Huldu til að rölta heim á leið og við trimmuðum þetta á met tíma ;) ég stökk inn hjá henni að pissa og æddi svo heim... hehe...

Þegar að ég kom heim þurfti ég að hringja og vekja hana móður mína þar sem hún hafði læst mig úti... vel gert mamma... en svo sat hún og tjattaði aðeins við mig og fór svo að hengja upp þvott meðan ég fékk mér að borða :P skreið svo södd og sæl upp í rúm :haha: 

Var vakinn með óskemmtilegu símtali hálf 8 um morguninn... fer að hafa slögt á símanuam mínum á nóttuni til að fá svefn frið ;) síðan var hringt aftur en þá var það Sindri alveg blind blekaður eitthvað að tjá sig... alveg ótrúlegir þessir Suðursveitungar ;) 

Svaf svo til hálf 3 takk pent:!: lufsaðist á fætur og var svo farinn á Héraðið um 5 en ákvað að stoppa í Olís af gömlum vana áður en marh fer úr bænum :P þar hitti ég Dadda og var eitthvað að tjatta við hann út í rigningunni þegar að Eysteinn kemur allt í einu út úr Olís.. fannst það pínu skondið ... hann greijið búinn að missa af viku... fyndið :P en svo æddi ég bara inn og tjattaði við stelpurnar og svo fór ég bara og fattaði þegar ég var að keyra út úr bænum að ég hefði að minsta kosti getað kvatt hann Eystein :P haha ótrúlega dónaleg ég ;)

Þetta var samt góð helgi þegar yfir hana er litið... ekki of mikil ölvun.. hitti alla krakkana og meira til :) hefði viljað sjá BM Vallá strákana og Hrefnu á barnum líka... þá hefði þetta bara verið fullkomið ;) hehehe En hvað getur marh beðið um meira en góða helgi í faðmi vina sinna :)  

Fór í vinnuna og það var bókstaflega EKKERT að gera svo við fengum að loka fyrr og þá var tekið smá rúnt...  kíkti síðan í heimsókn til Írisar D og Magga P ;) fór síðan heim um 10 að sofa:!:  

Veit ekki afhverju... en... ég vaknaði kl 06:11 í morgun... vekjaraklukkan átti að hringja 06:20... öm... en dagurinn skánaði ekki... það var ENGINN í morgunnmat... til hvers var ég að vakna:!:? en það er öm veður og ég er búin að liggja upp í rúmmi í næstum allan dag... ein... öm ég veit:!:  

----------------------------- o --------------------------------------

Það eru 11 dagar í að stelpan leggi land undir fót og skelli sér í borg óttans :haha: enn óákveðið hvort það verði farið akandi eða hoppandi ;) ... fínt að hafa bíl samt í bænum.. ekki það að ég mundi þora að keyra en þar kemur líka hann Ingi við sögu ;) ætli ég troði mér ekki upp á greijið til að byrja með... spurning um að flýja svo á Selfoss þegar aðgerðin er búin og meðan ég jafna mig... Gulla hvað segiru um það... kannski... þetta er svo stutt en samt svo langt ef marh pælir í því... úff... kvíður svo fyrir þessu... fólk er í því að hræða mig í sambandið við þetta.. segja mér ógeðslegar sögur og eitthvað... ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐ HJÁLPA:!: hehe...

En það er Páll Óskar næstu helgi:!: en stóra spurningin er... er það 16 ára eða 18 ára ball... humm.... kemur reyndar bara eitt til greina hjá mér... en hvað ætli þið að gera?????  

Þangað til næst

Margrét

Aldís skrifaði
jebb kvittt
Sölvi skrifaði
eins og ég er búinn að segja lengi það á bara að loka þessa pólverja inni um helgar! en það verður lítið gert þessa helgi, vonar bara að maður nái henni í Noregi. því miður missir maður af palla sæta :)
Margrét skrifaði
Eflaust meira líf á djamminu í Noregi en hérna... leiðinlegt að missa af Palla, hann er nú ekki alltaf á Austurlandinu ;)
Heiðdís Fjóla skrifaði
ég á einmitt í sömu vandræðum, hvort á maður að fara á 16 ára ball eða 18 ára! :O
Margrét skrifaði
18 ára og ekkert rugl Heiðdís mín !! meina opinn bar og svona ;)
Beta:* skrifaði
Hvað er að ykkur fólk það er enginn spurning auðvitað skellið þið ykkur á 18 ára ball :O:) En gaman að hitta þig ástin :*:* Geggjuð helgi :D
Gulla skrifaði
HæElskan... Ég er öll þín. Og þér er miklu meir en velkomið að vera hjá mér !!!!
Margrét skrifaði
Vissi það svo sem alveg :D haha en við förum á Palla á laug Gulla!!! ekki spurning :D Beta þetta ver góð helgi :) gaman að hitta þig sömó bara :* Já krakkar ekkert rugl... loksins orðin 18 ára þá mætir marh (löglega) á 18 ára böllin ;)
sigurveig skrifaði
18 ára balliðer klárlega málið....við mætum á það... en ja ég verð að farað hitta þig kona... ég sakna þín.... heyrðu í mér sem fyrst:)
Guðrún Erla Víðiss skrifaði
ég ég ég , já ég hlakka til að fá þig suður , takk fyrir :) elska þig stelpa ;*
Andrea Bj04k skrifaði
eisn gott að þú hrignjir i mig þegar thu kemur :D :D :D :D
Beta:* skrifaði
Piff ekkert vera að hlusta á þessar stelpur eins og Himm Guðrúnu og Andreu :P hehe En allavegna ég verð í Fríi þegar að þú kemur, Svo að við verðum núh að vera meira saman en síðustu skiptin sem þú hefur verið hérna ;)Allavegna þú bjallar í mig um leið og þú lendir ;) hehehe Svo ætla ég að taka þig með á eitt Rad Chili Djamm Föst eða lau !? Hlakka til að Hitta þig :) Love júú :*
Margrét skrifaði
Guðrún: það er gott að einhver vilji fá mig ;) Andrea: vað er síminn hjá þér ? ;) Beta: ég kemst ekki suður fyrr en 5.nóv :( svo ég missi af helginni en... verð lengur í bænum í kjölfarið :D hehe verðum í bandi með þetta :D hlakka líka til að hitta þig love ya 2 :*
Eysteinn skrifaði
Gaman að rekast á þig þarna um daginn, hafðu engar áhyggjur af því að hafa ekki getað kvatt ;) kv. eysteinn

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Um mig
Dagsetning
23. febrúar 2012