Drama Queen ;)

*Endalaust drama*

03.11.2007 14:58:02 / margretsa

Good things always come to an end.....

Síðasta bloggið... 

Jæja þá er komið að því... síðasta bloggið á þessari síðu minni hér...Blog.central er búið að vera með vesen alveg frá upphafi sérstaklega sambandi við myndir og annað þessháttar hér á síðuni... og ég er komin með nó...  

Búin að eiga margar góða og slæma tíma hérna... og búin að gera margt fyrir þessa blessuðu síðu og reynt að halda blogginu gangandi sama hvað bjátar á ;) og er rosalega ánægð með að vera klomin með yfir 20.500 heimsóknir :) 

En ég er ekki hætt þrátt fyrir það... ákvað að prufa eitthvað nýtt... það er holt... 

www.margretsa.bloggar.is  ný og betri Drama Queen síða ;)

 

 

Í síðasta sinn
Margrét

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 17:04:22 / margretsa

..Ef annað væri eitthvað annað..

Frá síðustu færslu hef ég ekki gert margt en eitthvað þó ;) 

Var að vinna alla síðustu viku á Gistihúsinu og síðan á pizzuni á þrið og fimmt og auðvitað um helgina líka :) eftir vinnu á föst fór ég á rúntinn.. var ein að hugsa.. svo allt í einu var liðinn 1 og hálfur tími ... hehe pikkaði Betúel upp og skutlaði honum á barinn og ég rak nefnið þarna inn og hitti Önnu :) sat hjá henni og Stefán Andra og fór svo heim um 2 að sofa :) hinn lang þráði svefn loksins að verða að veruleika :haha: 

Gerði mest lítið á laug... var bara að hanga með Sigurveigu minni :) síðan var það vinnan og svo enginn annar en Páll Óskar :!: Sigurveig var að keyra bílinn minn... Heiðdís, Benný og Elva komu með okkur og svo voru Tinna, Eyrún, Ljósbrá, Lallý og Kristín Thelma í hinum bílnum sem Eyrún keyrði :)

Það var skellt sér næstum beint á ball og ég dansaði af mér lappirnar:!: þetta var OF gaman:!: allavega fannst mér það :) fólk þarna á öllum aldri og ekki má gleyma því að næstum allar stelpurnar mínar voru þarna með mér :) hefði ekki getað beðið um meira :D eða jú eitt..........................

Sindri afrekaði það að skalla baksýnis spegilinn minn niður:!: takk Sindri:!: færð að laga þetta kallinn ;) 

Auðvitað hitt marh alla eins og alltaf þegar það er ball hér á Austurlandinu... hitti t.d. Svönu mömmu hennar Huldu :) gaman af því :D

 

 

 

 

 

Eftir ball breyttist aðeins stemmarin hjá minni en ég komst líka að því hvað ég á æðislega góðar vinkonur :D veit ekki hvar ég væri án ykkar stelpur mína (Allar sem voruð með mér á laug og auðvitað þið allar saman:!: ) og já fékk næstum eitt stikki asmakast á leiðinni heim.. þar var bara flasback frá útlandaferðinni góðu :D en það fór allt vel, vissi alveg hvað ég átti mér að gera ;) svo festum við bílinn... í hlaðinu hjá Gumma og co... bara fyndið :haha: en Kjartan, Gummi og Jói voru svo mikil æði að losa hann daginn eftir svo ég gæti nú keyrt í vinnuna :)

Veit ekki hvað ég hef gert til að verskulda svona góða og umhyggjusama vini :D 

En eftir vinnu var haldið heim og upp í rúmm takk pent:!: vaknaði svo eldhress í morgun í vinnuna og svo ENGINN í morgunmat.. vúbbídú:!: en þetta er líka síðasta vikan mín á Gistihúsinu.. úff... það fer að koma að þessu... þarf samt að vinna á pizzuni um helgina þannig að ég fer suður á mánudeginum þann 5.nóv.. daginn fyrir aðgerðina :S  svo ætlar litla andfýlan ég að halda á Selfoss til Gullu og jafna mig þar :) 

Annars er lítið sem ekkert að frétta af mér :) það gerist aldrei neitt hérna fyrir austan... eða lítið allavega ;) Engin pæling hjá mér eða neitt.... held að mér sé bara óhætt að segja að lífið sér yndislegt:!: :haha: 

Vil líka benda á skoðunarkönnunina hér til hliðar.. hef ekki haft könnun í einhvern tíma... en mana ALLA til að taka þátt ;)

Endum þetta á gleðifréttum :haha: er búin að setja inn myndirnar af þessu magnaða balli og myndirnar úr party heima hjá Kol fyrir Glys bal :haha:

 

 

Þangað til næst
Margrét

» 12 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 21:31:48 / margretsa

...Special...

Þetta var bara ágætis helgi :) hitti Betu mína og Hjördísi :haha: hef ekki hitt þær leeeeeeeeeeeengi... svo hitti marh náttúrulega hitt pakkið líka ;) 

Ég þarf að læra að þegja... þetta er að verða vandamál :P nei nei... en þar sem ég kann ekki að þegja þá var ég að vinna um helgina... mína frí helgi.. sem var reyndar alveg ágætt sko.. eftir vinnu á föst var haldið heim á leið eftir eina langa og góða sturtu hérna í Fellabæ.. og það var barinn... þambaði bjórinn til að ná stelpunum en það gekk ekkert... þær svo svo laaaaaaaaaangt á undan mér í drykkjuni ;) en var orðin pínu ölvuð þarna í restina... þegar ég var basla við að labba beint heim ;)  

Vaknaði hress og kát á laug morgunn og fór með stelpunum í hádeginu í Olís í þynnkumat og á þynnkurúnt sem einkenntist á því að skilja Hjördísi eftir hér og þar um bæinn ;) hehe alger snild :P svo var lagt sig og drullast svo á Egs í vinnuna... það var ekkert að gera... Þór var hins vegar að halda upp á 50 ára afmælið sitt svo við Eyrún höfðum þó eitthvað að gera... síðan um 10 leitið fór ég heim á Rey og var alveg að sofna en skellti mér nú samt í sturtuna og heim til strákanna í Party og co.  Síðan var rölt niður á bar og var marh aðeins farinn að finna á sér eftir allt þambið á leiðinni :P en þegar ég kom inn á barinn rann fljótlega af mér...

Það er ekki hægt að fara þarna inn án þess að þurfa að hafa einhvern til að hlaupa til ef pólverji eða einhver útlendingur fer að reyna við þig... allavega þetta kvöld...  við stelpurnar vorum á dansgólfinu og eitthvað að dansa þegar einhver pólverji labbar að Hjördísi og stríkur upp lappirnar á henni og svo kom einhver annar og stríkur klofið á Thelmu:!: mér misbauð þetta og að rann af mér á sekúntuni sem þetta átti sér stað:!:  varð ekkert drukkin aftur.. fannst ég alltaf þurfa að vera að líta afturfyrir mig og tjékka hvort það væri verið að elta mig... rosalega leiðinlegt...

Eftir að barinn lokaði náði ég að dofla Huldu til að rölta heim á leið og við trimmuðum þetta á met tíma ;) ég stökk inn hjá henni að pissa og æddi svo heim... hehe...

Þegar að ég kom heim þurfti ég að hringja og vekja hana móður mína þar sem hún hafði læst mig úti... vel gert mamma... en svo sat hún og tjattaði aðeins við mig og fór svo að hengja upp þvott meðan ég fékk mér að borða :P skreið svo södd og sæl upp í rúm :haha: 

Var vakinn með óskemmtilegu símtali hálf 8 um morguninn... fer að hafa slögt á símanuam mínum á nóttuni til að fá svefn frið ;) síðan var hringt aftur en þá var það Sindri alveg blind blekaður eitthvað að tjá sig... alveg ótrúlegir þessir Suðursveitungar ;) 

Svaf svo til hálf 3 takk pent:!: lufsaðist á fætur og var svo farinn á Héraðið um 5 en ákvað að stoppa í Olís af gömlum vana áður en marh fer úr bænum :P þar hitti ég Dadda og var eitthvað að tjatta við hann út í rigningunni þegar að Eysteinn kemur allt í einu út úr Olís.. fannst það pínu skondið ... hann greijið búinn að missa af viku... fyndið :P en svo æddi ég bara inn og tjattaði við stelpurnar og svo fór ég bara og fattaði þegar ég var að keyra út úr bænum að ég hefði að minsta kosti getað kvatt hann Eystein :P haha ótrúlega dónaleg ég ;)

Þetta var samt góð helgi þegar yfir hana er litið... ekki of mikil ölvun.. hitti alla krakkana og meira til :) hefði viljað sjá BM Vallá strákana og Hrefnu á barnum líka... þá hefði þetta bara verið fullkomið ;) hehehe En hvað getur marh beðið um meira en góða helgi í faðmi vina sinna :)  

Fór í vinnuna og það var bókstaflega EKKERT að gera svo við fengum að loka fyrr og þá var tekið smá rúnt...  kíkti síðan í heimsókn til Írisar D og Magga P ;) fór síðan heim um 10 að sofa:!:  

Veit ekki afhverju... en... ég vaknaði kl 06:11 í morgun... vekjaraklukkan átti að hringja 06:20... öm... en dagurinn skánaði ekki... það var ENGINN í morgunnmat... til hvers var ég að vakna:!:? en það er öm veður og ég er búin að liggja upp í rúmmi í næstum allan dag... ein... öm ég veit:!:  

----------------------------- o --------------------------------------

Það eru 11 dagar í að stelpan leggi land undir fót og skelli sér í borg óttans :haha: enn óákveðið hvort það verði farið akandi eða hoppandi ;) ... fínt að hafa bíl samt í bænum.. ekki það að ég mundi þora að keyra en þar kemur líka hann Ingi við sögu ;) ætli ég troði mér ekki upp á greijið til að byrja með... spurning um að flýja svo á Selfoss þegar aðgerðin er búin og meðan ég jafna mig... Gulla hvað segiru um það... kannski... þetta er svo stutt en samt svo langt ef marh pælir í því... úff... kvíður svo fyrir þessu... fólk er í því að hræða mig í sambandið við þetta.. segja mér ógeðslegar sögur og eitthvað... ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐ HJÁLPA:!: hehe...

En það er Páll Óskar næstu helgi:!: en stóra spurningin er... er það 16 ára eða 18 ára ball... humm.... kemur reyndar bara eitt til greina hjá mér... en hvað ætli þið að gera?????  

Þangað til næst

Margrét


» 14 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 13:00:48 / margretsa

Hvað er ég.. ?

Vinna... vinna... vinna... kirtlataka.... frí... vinna... vinna... vinna... 

Ómerkilegt þetta litla líf sem ég lifi hérna...  

Föstudagurinn fór í vinnu.. var að baka á pizzuni og fannst það helvítið gaman :D síðan fór ég heim í sturtu og svona gerði mig fína og var að bíða eftir að Ingi og þeir mundu koma... þegar þeir voru komnir fór ég út í bústað til þeirra og byrjaði að drekka en síðan átti að fara á Óvissuballið en taxinn vildi ekki keyra okkur... og ég hringdi í allan heiminn til að fiska eftir fari en nei nei enginn... en svo fórum við bara inn á Peppers.. frekar spes... hitti eitthvað af fólki en var samt engan veginn að fíla mig þarna... fólk orðið hresst og ákváðum við Ingi að pilla okkur upp í bústað, Eysteinn og Guðjón ætluðu í eitthvað party með einhverjum færeyskum gellum... Sigurveig var svo ljúf að keyra okkur út í bústað en svo nokkrum mín seinna kom hún með Eystein og Guðjón hehe..... það var sungið og glamrað á hljómborð og gítar eitthvað frameftir og síðan haldrið í háttinn :)  

Ég vaknaði við það að hann Sindri var að hringja í mig kl hálf 11 á laug.morgunn og það var drifið sig á fætur og brunað niður á Rey en þar voru Ingi og Eysteinn að fara að keppa á Framhaldsskólamóti í fótbolta.. ég ætlaði að nota tíman og fara í sturtu heima og svona en nei... fékk nú ekki að fara neitt svo ég horði á leikina og hafði nú bara lúmst gaman af ;) gaman að sjá hvað sumir eru efnilegir :haha:  en FAS tók og vann þetta mót enda stóðu þeir sig með eindæmum rosalega vel :) var nú spurð að því hvort að ég væri að svíkja lit... ég var ekki lengi að taka það fram að ég væri ekki í skóla og mætti þetta alveg ;) hehe en auðvitað heldur maður með sínum manni ;)

Síðan var haldið á Egs og ég fór í vinnuna og var að baka pizzur á fullu og hafði gaman af :)  Kristó að keyra út pizzum á bílnum mínum þar sem Þór og Sigga voru í Rvk... hafði líka lúmst gaman af því að geta skipað Kristó til að vaska upp og gera ímislegt ;)

Eftir vinnu fór ég út í bústað og skellti mér í snögga sturtu og dró svo Inga og strákana með mér niður á Rey... ég fór í afmæli til Thelmu en strákarnir byrjuðu niður á bar... gaman að hitta alla krakkana og taka létt djamm með þeim :) svo komu strákarnir en þá var orðið svolítið minna af fólki en var þegar ég kom... svo var tekinn taxi heim hvorki meira né minna :) og það var sko sofið út hehe mamma og þau samt að setja þakplötur á þakið svo það var enginn friður frekar en vanalega ;) 

Litla frekjan ég fékk sínu fram og Ingi var eftir hjá mér :haha: fórum í mat til Agnesar inn á Shell rosa gott :) síðan fór ég í vinnuna á meðan Ingi lá heima að drepast úr þynnku greijið... svo fór ég í vinnuna á mán og eftir vinnu átti að fara beint heim með Inga en ég var svo þreytt að ég ákvað að leggja mig áður og við fórum um 6 suður held ég.. en feiluðum alveg á því að skoða veðurspána og ég endaði veðurteft í Suðursveit... aftur... en ég lagði af stað upp úr hádegi þegar það var farið að læja almennilega.... mætti galvösk á pizzuna og það var fínt að gera.. var fram í sal í þetta skiptið en var samt hálf slöpp eins og ég er núna... fór í vinnuna í morgun en fór heim upp úr 10.. verð bara að ná þessu úr mér almennilega.....

Svo er Beta að koma um helgina og ég ætla mér að hitta hana :)   

Ohh það verður ljúft að hanga bara á Reyðó um helgina... enginn vinna og ekkert flakk .. bara leti :P 

En ég er að fara suður föstudaginn 2.nóv. og verð fyrir sunnan í svona.. tja.. 10  daga ... tvær vikur... fer allt eftir heilsunni minni... en ég er sem sagt að fara í kirtlatökuna.. loksins...  

Vil óska Thelmu til hamingju með afmælið á mánudaginn ;* 

Þangað til næst

Margrét


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 22:58:21 / margretsa

Rok, rigning og kalt :(

Skil þetta ekki... það bara gerist ekkert... ef ég geri það ekki þá gerir það enginn:!: 

Ég var að þjóna út í Lagarfossvirkun á laug. við opnunina á þessari glæsilegu virkjun.. nemahvað... það var brjálað veður og það hvein í húsinu:!: var skít hrædd þarna:!: svo var líka brjálað rok úti fánastangirnar alveg að fara að detta og tengdamömmubogs af einhverjum rosalegum audi að fara að fjúka af:!: við Teddi vorum búin að sjá þetta fyrir okkur ;) hehe en svo var bara rifið mig á brott í ferðalag... út í vondaveðrið ;)  mikið rétt Ingi dró mig á Höfn:!: suprise suprise ;) djóóók:!: 

Hann var svo góður (eða Fúsi bróðir hans samt) að bjóða mér á frumsýninguna á leikriddinu Eitís sem skemmtanafélag Hafnar var að setja upp og ég verð bara að segja að þetta var rosalega góð sýning :) það var 3ja rétta máltíð og ábót :haha: en það var drukkið hvítvín með matnum og sumir glommuðu þetta í sig eins og vatn ;) eftir þetta var pínu party svo ball á Hótel Höfn og þar var drukkið og dansað :) síðan í eftirparty með fólkinu úr leikriddinu mjöög gaman :) fengum pastarétt og snakk hahaha ;) síðan um 5 var tekið röltið heim á leið (heim til Fúsa)... 

Sunn fór í eintóma leti fórum inn í Hafnarbúð að borða og ÉG  keyrði þar sem Ingi var ekki ökufær ;) og síðan fórum við heim aftur haha eftir að ég keyrði eitthvað inn í eitthvað hverfi og fann bakhliðina á símanum hans Sindra :’D þar sem Ingi henti henni frá sér um nóttina... já ég var eiginlega bara edrú:!: hehe mundi ALLT:!: sem var líka fínt :) en Ingi fann einmitt síma á dansgólfinusem hann ætlaði bara að hirða en nei nei kom í ljós daginn eftir að Sindri átti hann :'D Sindri ég er ekki skrítin:!: bara sérstök :haha: nák ;)

Ingi þurfti síðan að keyra mér heim aftur :) eftir að við kíktum í mat í sveitina auðvitað ;) svo var ég svo heppin að halda honum hjá mér í 2 nætur :haha: en hann fór á þrið og ég var eitthvað slöpp á mið og treysti mér ekki í vinnuna þannig að ég var heima og átti góðan dag fyrir mig:!: hehe  

Vaknaði allt of snemma í morgun og þarf að gera það aftur í fyrramálið ... svo er Óvissuball á morgun og það er óvíst hvort ég nenni ;) svo er Thelma að fara að halda upp á afmælið sitt heima hjá strákunum á laugardaginn og auðvitað mæti ég:haha: kominn tími á djamm með stelpunum:!:

 

 

Þangað til næst
Margrét

» 7 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 23:03:44 / margretsa

Er hægt að vera háður öðrum aðila??

Jæja 12 dagar síðan síðast... þetta gengur ekki...  

Ball með Glys 22.sept... skemmtilegt ball...mikið dansað... en færi ekki edrú á svona ball:!: ó niii ;) 

Vikan eftir fór í að vinna, sofa, vinna, rúnta, sofa og já vinna.... 

Síðasta laug skellti ég mér í suðursveit eftir vinnu :haha: gott að komast í burtu og slappa af:!: var dregin á fætur og út að smala á sunn.morgun og í réttirnar þakka þér fyrir ;) en það var rosalega hressandi og skemmtilegt :) langt síðan síðast... svo var það bara leti og ekkert annað... of mikil leti kannski ;) ........... og einhver slappleiki á ferðinni svo ég fór ekki heim og heldur ekki á mán.... :P þá var reyndar líka vont veður og eitthvað slæmt í skriðunum :P en fór heim á þrið kvöld.... eftir letidag í sveitinni ;)Ingi var svo sætur og bauð mér út að borða á Hótel Höfn :haha: rosalega kósý staður og góður matur:!: en síðan var haldið í hann heim á leið.......... 

Við tók.... vinna.... sofa.... vinna.... rúnta.... vinna ;) hahaha 

Var að klára vakt á pizzuni og er skriðin upp í rúmm hálf dösuð eitthvað og þarf að vakna 6:20 í fyrramálið eins og ALLA virka daga... svo er pizzan annaðkvöld síðan HELGARFRÍ:!: nei bíddu ekki satt... tók að mér að þjóna í einhverri veislu út á Lagarfossi á laug :P hehe peningar nammi namm :haha: 

Það var spilað eitthvað lag í útvarpinu um daginn og mér varð hugsað til Party og CO........ og ég uppgötaði það að ég sakna þess að djamma heima á Rey með krökkunum:!: vera á sneplunum í sing star eða hafnabolta eða keilu... jafnvel pílu... ohh sakna ykkar krakkar ;* 

En ung stúlka í lífi mínu átti merkis afmæli þann 3.okt engin önnur en Fjóla litla sysir mín og viti menn ... ég fór á REYÐÓ ;) 

En ætla að fara að sofa... er að leka niður hérna.... en krakkar endilega hafiði samband:!: er ALLTAF með síman... nema í vinnuni... eða jú stelst alltaf til þess... get ekki slitið hann frá mér:!: heh..... 

Þangað til næst

Margrét


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 14:36:26 / margretsa

..Fölnuð rós blómstrar á ný...

Þetta blogg leisi gengur ekki! En er ekki komin með netið í tölvuna mína heima í Brekkubrún en hérna er ég í borg óttans :haha: enn og aftur ;)

Hef ekkert getað hitt Betu :( né Guðrúni en hún var víst bara í USA.. naumast að það sé veldi á minni ;)Er flutt í Fellabæ, Brekkubrún 12:!: er að leija herbergi hjá Vidda frænda og Fjólu :) mikið ódýrara heldur en hitt... en er bara búin að vera á fullu í vinnuni og gert lítið annað.. vinna og sofa.. hljómar mega fjör... NOT:!: hehe

Hef hitt stelpurnar of lítið síðastliðna viku.. hvað var það??

En það er ball í Valaskjálf í kvöld Glys beibí ;) haha það verður sérstakt en ég ætla að vera full :haha: plataði Þröst kallinn til að fara í ríkið og ég kem austur með næstu vél :haha: ef að ég get hoppað með :P vona það samt.. Stelpu hittingur heima hjá Almari og Kol.. humm... ég að mæta eða? Telst ég ekki annars sem stelpa :haha:

Gulla og Axel á leiðinni í bæinn og ég sit bara hérna í Breiðholtinu, Rjúpufell.. og gera ekki RASS:!: Ingi fór í Haustferð með Háskólanum og þetta er víst eitthvað rosa fjör svo party eftir á og djamm framm á nótt :) en þetta er það sama og ég ætla mér að gera ;) nema ég er ekki að fara í neina ferð.. eða jú vonandi fljúga austur :haha:

En það var Austfirðingaball í gær.. fór nú reyndar ekki.. var samt mega fjör í fyrra :haha: :!:

En það var fljótt að líða að oktober.. úff.. tíminn er allt of fljótur að líða:!: díss:!:

Hey já.. fór til læknis í gær.. sem var nú upphaflegur tilgangur ferðarinnar :P og ég á að fara í kirtlatöku... vissi það svo sem alveg en fékk samt einhvernvegin miklu meira í magan þegar hann sagði það og nefndi nóv.. des... ÞAÐ ER SVO STUTT:!: þá verða næstum komin jól:!: hahahaha...

Uppgötaði það í gær að ég er farin að rata svolítið hérna í bænum .. sem er mjög gott.. get kannski farið að keyra sjálf fljótlega.. FLJÓTLEGA:!: hehe = þegar ég treysti mér til :$

Já vil koma því að hjá fólki að ég er að hætta að reykja :) rosalega stolt af því :) ekki búin að reykja síðan 25 ágúst... allavega ekki að ráði... meira svona 1 svo 3 svo 2 svo engin og engin og svona þið fattið :)

Well hef lítið annað að segja nema sjáumst á balli fyrir austan ;)

 

Þangað til næst

Margrét

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 21:12:20 / margretsa

...To late to apologise...

Stelpan bara í borg óttans ;)

Ímislegt búið að ganga á síðan ég bloggaði síðast...

Var svolítið að vesenast síðustu viku s.s. sækja um vinnu og íbúð og viti menn fékk bæði :haha: svo það er komið á hreint:!: stelpan er að fara að flytja á Egs LOKSINS er með 2 vinnur núna á Egs.. sótti nefnilega um vinnu á Gistiheimilinu Egilsstaðir og ég fékk hana svo ég er að vara að vinna frá 7 – 3 alla virka daga og síðan á Pizzuni á þrið og fimmt og aðra hverja helgi :) ég að fara að vera vinnu alki í vetur og eiga mér ekkert líf ;) jebb :P

Átti helgarfrí um helgina svo ég ákvað að skella mér í borg óttans ;) fór með hádegisvélini á föst og Ingi sótti mig :) búin að hitta Gullu systir og svona :D fór með henni á The Sipmson movie á föst.kvöld á meðan Ingi fór á einhverja nýnemakinningu hjá háskólanum... fór til Betu og rak aðeins inn nefið :P of langt síðan ég hef hitt hana og það var bara æðislegt að sjá þig sæta ;* :!::!: svo hitti ég Guðrúni aðeins á leiðinni út haha sló tvær flugur í einu höggi ;) hehehe

Fór í bíó í gær með Inga á Knocked up og hún er helvítið fín :) ætlaði líka heim í gær en þar sem ég átti ekki að vera að vinna kom smá kæruleisi í mig og ákvað að vera eina nótt enn :)

Ingi fór samt í skólan í morgun en hoppaði svo upp í til mín eftir skóla ;) kíktum aðeins í Kringluna og ég keypti mér ilmvatn... ótrúlegt en satt þá er ég búin að vera hér í Rvk síðan á föst og ég er ekki búin að kaupa mér neitt:!: nema borða og þetta ilmvatn :haha: en ég ætlaði mér að fara heim í kvöld hehe... en viti menn fullbókað í vélina sem ég ætlaði að hoppa með... æj æj... fer bara heim á morgun ;)

Sigurveig er komin í bæinn og erum kannski að fara að kíkja í bíó á eftir :) ætli Ingi fái ekki að koma með ;) hehe

En verð nú að fara heim á morgun ganga frá íbúðarmálunum og svona... hef ekkert nennt að spá í þessu um helgina þar sem ég er í fríi:!: sorry krakkar er bara búin að vera svoooooooooooooooo upptekin ;)

 

Flottir skór ;)

Þangað til næst

Margrét

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 14:09:26 / margretsa

...Grow old with me...

Sæl og blessuð allt of langt síðan ég bloggaði síðast :S verðið að afsaka það ;) Lítið hefur drifið á daga mína síðan ég bloggaði síðast...  

Ingi kom til mín síðasta mán og var hjá mér fram á mið :haha: en hann flutti svo til Rvk á laug :( glatað ;) en gangi þér vel í skólanum elskan :) 

Annars er ég bara búin að vera að vinna og vinna og vinna meira ;) horði á busunina á föst og hafði gaman af :D Agnes og Íris teknar í gegn ;) svo um kvöldið var það Busaball og ég er alveg búin að ákveða það að ég fer ekki EDRÚ á skólaball aftur í vetur:!: það er alveg á hreinu ;) en við Thelma voru tilbúnar til að fara heim um hálf 3 leitið en vorum lagðar af stað með Gerði með okkur rétt eftir 3... allir voðalega hissa á að ég væri edrú.. en ég er nú búin að vera rosalega mikið edrú í sumar öruglega bara 60 % eða eitthvað ;) hehehe 

En Katrín er flutt norður :( ætla að reyna að nota eitthvað af helgarfríunum mínum í að skella mér norður í heimsókn :haha: losnar ekki við mig svona auðveldlega elskan ;) en vil samt þakka þér fyrir fína helgi elskan og afsakaðu pirringin ;) 

Allir í skólanum nema ég... mér finnst það samt fínt...  get sofið út og unni á kvöldin hehe er samt að fara að fá mér dagvinnu svo ég verð vinnualki í vetur ;) 

En stúlka ein að nafni Ljósbrá átti afmæli í gær og vil ég óska henni innilega til hamingju með 18 ára afmælið :haha: kossar og knús sæta ;* 

En er komin með litla bleik aftur :haha: gæti ekki verið ánægðari:!: alveg ótrúlegt hvað sumt fólk er ómerkilegt :/ en sumir eiga meira bátt en aðrir... finnst samt rosalega gott að þetta sé allt að koma á hreint :) það borgar sig að segja sannleikan:!: allavega upp að vissu marki :) en í þessu tilviki borgar sig að segja hann allan:!: 

Well... hef lítið að segja.. gerði þetta bara fyrir hana Sigurveigu sem var eitthvað að frekjast ;) djóóóók elska þig sæta ;*

 

Svo sætar ;*
Þangað til næst
Margrét

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 19:57:06 / margretsa

... Æðisleg helgi í alla staði ...

Haldiði að stelpan hafi ekki bara skellt sér til Rvk á mið :P

Ætlaði reyndar að fara á Höfn á mið og svo suður á fimmt en veðrið var að spilla því svo ég hoppaði bara upp í næstu vél í borg óttans ;) 

Árný systir kom og sóttir mig í flug og fórum við á Seljaveginn og vá hvað það var tómlegt að koma þarna þegar það var búið að pakka næstum öllu :/ svo var það bara spjall og flíflagangur með karftöflubyssuna ;’D Óli klárlega með þetta ;) spjallaði svo við Inga fram á nótt og síðan að sofa :) 

Fimmtudagurinn... vaknaði og geri mig til fyrir Smáralindina og Bergþóra og Gulla sóttu mig og fórum við þangað að eins að versla og stelpan fann sér buxur og 2 boli :)  fór á rúntinn með Andreu, Grétu og Agnesu um kvöldið og gisti síðan hjá Agnesi :) 

Föstudagurinn... Fór með Agnesi og Anju sætu í Kringluna og hittum Grétu og síðan kom Gulla.. svo var bara skoðað föt og verslað pínu ;) mikið :PFór svo á tónleikana á Laugardalsvellinum og VÁ:!::!: hvað það var gaman:!: við vorum aftalega mest allan tíman en vorum fremst líka eitthvað og pósuðum framan í myndavélarnar ;) komum víst í TV og erum á mynd framan á morgunblaðinu á laug ;) hahaha fyndið ;) eftir tónleikana skellti ég mér til Inga og var með honum um kvöldið :) fórum með bræðrum hans niður í bæ en við röltum bara þar sem ég er ekki nógu gömul til að komast inn á staðina niðri í bæj :( tókum smá rúnt með vinkonum Inga en fórum svo heim til Árnýar og sátum þar fram á nótt.. spjalla við Árný og Óla :) mjööög gaman :) svo lá ferðinni heim til frænku Inga að sofa :)  

Laug...  fórum og fengum okkur að borða með Sindra og Guðjóni síðan var bara gert mest lítið.. minnir mig :P fórum síðan til Árnýar í sturtu og hittum Gullu og Axel og svona :) síðan voru það tónleikar á Miklatúni :) þeir voru samt ekki nærrum því jafn góðir og tónleikarnir á föst ... en það var lítil stelpa þarna algert krútt:!: ég, Agnes og Gréta voru eitthvað að geibla okkur framan í hana eða bara ég :P hehe eftir tónleikana röltum við niður í bæj að horfa á flugeldasýninguna og það sem ég náði af henni var bara rosalega flott :)Síðan tók bara við rölt niðri í bæj og hitt fullt af liði :) fórum síðan heim um 3 leitið....  

Sunn.... letidagur dauðans ;) fórum á Hróa Hött með Sindra, Árný og Óla svo lá ferðinni bara heim :( það var bara öm að kveðja Inga en við hittumst nú aftur ;)  

Keyrði á Selfoss að ná í Gullu og svo var langt af stað austur :) Todmobil alveg með þetta á leiðinni heim :haha: og einhverjir eld gamlir diskar ;) alltaf gamna að taka road trip :P keyrði á Höfn og þá tók Gulla við en ég tók aftur við á Breiðdalsvíl :P vorum komnar heim rétt eftir 12 og þá spjallaði marh smá við múttu og síðan bara farið að sofa :) 

Í gær fór ég svo á Egs og hitti Söndru og Sigurveigu ;* dró þær með mér að ná í Gullu á Sey en hún fór þangað með bílinn hennar Árnýar svo hún gæti nú haft hann hjá sér úti :) síðan var bara rúntað á Egs og farið svo heim að sofa...  

Í dag hef ég gert mest lítið... fór heim til Rögni og hitti LOKSINS Írisi mína ;* búin að sakna þín OF mikið stelpa:!: en þar voru einnig Agnes, Gréta, Hulda, Hjördís og auðvitað hún Ragna :)  

Beta flutt suður til pabba síns :( náði ekki að kveðja hana en ég á eftir að elta hana suður ;) hehe á samt eftir að sakna þín Beta ;* 

Og já myndirnar af Versló eru loksins komnar á netið:!: Neistaflug ‘ 07 undir myndir 2007 :) njótiði nú :) 

Hey Katrín hvar er myndavélin mín... dæræræææ... hehehe

 

Þangað til næst

Margrét

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 02:49:25 / margretsa

18 og 5 daga ;D

Sæl nú :) 

Stelpan bara 18 ára og 5 daga gömul :haha: hehehe  

Á mið var Hulda með matarboð heima hjá sér í tilefni af afmælinu hennar sem var á mán :) marh mætti og borðaði dýrindis mat í góðum félaskap :) skelltum okkur svo út að kaupa okkur shake ;) enduðum í einhverskonar eltingaleik sem endaði á bílafeluleik ;’D bara fyndið þegar ég, Hulda og Beta földum okkur bakvið póstbílinn og stelpurnar voru að leita hjá Króninu og fóru út úr bílnum og löbbuðu eitthvað... ég sagði Huldu að fara að taka bílinn haha og eftir smá erfiði náði hún bílnum en þá voru stelpurnar komnar að bílnum hjá okkur Betu og við æddum í burtu og Hulda á bílnum þeirra:!: hehe stelpurnar voru með einhverna helvítis plasthanska með vatni í og voru alltaf að kasta í bílinnhjá okkur... en þær leiddu okkur hins vegar út í einhverna vitleisu en komumst á réttan stað á endanum og þær drápu okkur næstum úr hræðslu þegar þær stukku út úr runnunum:!:

Eftir þessi æfintýri fóru stelpurnar heim til Huldu að drekka en ég rúntaði lengur og átti gott og langt spjall við Inga :)   

Þegar kl sló 12 þetta ágæta kvöld hringdu stelpurnar í mig og sungu afmælissöngin fyrir mig á dönsku :D þakka fyrir það stelpur mínar ;* 

Afmælisdeginum eyddi ég mest megnis upp í rúmmi... letin alveg að fara með mann :P gerði mest lítið annað en að kúra með you know who ;) og horfa á tv og já svara í símann:!: hehe 

Á föst.. byrjaði ég í nýju vinnuni minni :D Pizzan Egs :) næsta skref er að finna sér íbúð...

Eftir vinnu fór ég heim til Gumma þar sem hann og Katrín voru og ég endaði mjööög hress inn í Valaskjálf hehe ;) 

Vinna á laug... svo party heima hjá Katríni... Valaskjálf.. labba yfir nesið og sofa ein heima í sveitinni hennar Katrínar...  

Vinna á sunn svo heim til Gumma að horfa á mynd og aðra mynd svo heim að sofa:!: 

Var vakin í morgun af Fjólu en þessi elska var með popp fast milli tannana og rétti mér tannstöngul og bað mig um að ná því úr ;’D hehe var búin að sofa í kannski 5 tíma þegar hún vekur mig svo ég rétt gat opnað augun hehehe stein svaf svo fram yfir hádegi :P 

Var að vinna frá 17 til 23 í kvöld og kíkti til Gumma og áttum við gott spjall um íbúðarmál í vetur :) en sit núna hérna á msn og hlusta á mjúsik :P

Á morgun kemur mín heitt elskaða Sigurveig heim og ég er klárlega að fara að leika við hana :D hehe

 

 

Þangað til næst
Margrét

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 15:40:36 / margretsa

Því ég á afmæli í dag og núna má ég allt ;)

Loksins loksins :haha: 

Stelpan orðin 18 ára :D 

Þakka fyrir allar kveðjurnar krakkar þið eruð æði ;* 

Takk fyrir jakkan Bjarni ;* og kökuna mamma :haha:

 

 

Þangað til næst
Margrét stóra stelpan ;)
Minni á bloggið hér fyrir neðan :)

» 9 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 01:58:02 / margretsa

Drullu töff ;)

Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast :) skal reyna að muna eftir öllu ;) 

Á mið skelltum við Hulda, Silvía og Kris okkur til Ak :haha: rosalega skemmtilegt road trip :haha:  versluðum fyrir Versló, fórum í Rúmfatalagerinn og ríkið og Greifan og svona :haha: ég skellti mér inn á Plaza að hitta Elvar beibí :haha: æðislega gaman að hitta þig elskan ;* hitti líka Einar bróður Davíðs í sjoppuni þegar við vorum að fara rosalega gaman ;)

Silvía og Kris fóru í tattú og við Hulda fórum og fengum okkur Brynju ís :haha: marh fer ekki á Ak án þess að fara á Greifan og fá sér Brynju ís ;) svo var bara farið heim :) 

Keyrði Heiðrúni á Egs en hún var að flytja suður og er bara farin :( en ég gisti hjá Sigurveigu ;* sem er núna út í útlöndum :haha: skemmtu þér rosalega vel sæta mín ;* sakna þín ;* 

Svo kom fimmt :haha: og enginn önnur en hún móðir mín átti afmæli :haha: ég keyfti handa henni hálsfesti og eirnalokka rosalega flott :D og bljómvönd auðvitað ;) gaf henni þegar ég kom heim frá Egs og Gulla systir lét einmitt senda henni blómvönd í vinnuna :) svona erum við systurnar sætar í okkur :haha:  

Keyrði síðan Huldu á Nesk til tannlæknis og fórum heim aftur og gerðum okkur klárar fyrir langa djamm helgi :haha: síðan var haldið á Nesk og tjaldað Party tjaldinu síðan okkar tjöldum og drukkið og haft gaman langt fram á nótt ;)   

Föst.. ég, Beta og Thelma fóum í sundlaugina í sturtu til að fríska upp á okkur síðan var drukkuð meira og haft gaman ;) skellt sér á Out Loud í íþróttahúsinu og verð að segja að þetta var eitt gott ball :) 

Laug... Sundlaugin enn og aftur og frískað upp á sig síðan skellt í sig :haha: stemmari á tjaldsvæðinu :haha: og svo var haldið heim til Huldu :) síðan var það Buff ball :haha: skemmti mér ótrúlega vel á þessu balli :haha: marh vel í því og bara gaman :haha: þó svo að ég sé ekki fullkomin og hefði getað sleft einu en ég er ekki fullkomin :) fékk að gista hjá Benna beibí ;* enn og aftur nennti ég ekki upp á tjaldsvæði... takk fyrir gistinguna elskan ;* 

Sunn... ég var rosa rosa þunn:!: ég hafði skilið veskið mitt eftir einhverstaðar  niðri í bæ kvöldið áður en sem betur fer fann Steini hjá Fjarðabyggð veskið og það var símanúmrerabók í veskinu sem var með nrinu mínu svo kallinn gat komið því til mín :haha: sem betur fer fannst veskið því bíllyklarnir mínur voru þar:!: en vaknaði sem betur fer til lífsins fyrir kvöldmat og var þá farið í vínið :P party tjaldið okkar fauk niður og skemmdist :( en var nothæft fyrir því ;) það var gert sig fínan og farið í brekkuna :haha: sungið og trallað :haha: Ragna rosalega hress ;) Flugeldasíningin var rosalega flott:!: Heimir lenti í einhverju böggi og var tekinn af lögguni :S Thelma og Beta fóru með ... ég skellti mér upp á tjaldsvæði þar sem mig vantaði áfengi :$ haha stelpan hress í gær ;) það var rosalega góður stemmari á tjaldsvæðinu á sunn.kvöldið komið fullt af fólki og svona :) en svo var það Todmobil :haha::!: hvað það var gaman:!: klárlega topurinn á helginni :)

Hulda átti afmæli kl 12 og á þar af leiðandi afmæli í dag :haha: til hamingju með það ástin mín ;*

En eftir ball var marh aðeins úti og svo upp á tjaldsvæði.. eftir að hafa stoppað heima hjá Huldu og fengið sér að borða :haha: og það var góður stemmari þarna loksins fólk vakandi þegar marh kom neðan úr bæj:!: hehe en þá fór ég snemma að sofa ;) haha var nú samt vakin stuttu seinna með skemmtilegu símtali :)  

Vaknaði í hádeginu í dag og pakkaði saman draslinu mínu og tók svo Huldu, Betu og Guja með mér í Egilsbúð að borða :) síðan var haldið heim á leið :) stelpan búin að vera rosalega dugleg síðan ég kom heim :haha: pússa skóna, þrífa í herberginu, ganga frá útileigudótinu, þvo þvott og svona dugnaður :haha: 

Titlar helgarinnar 

Snillingur : Strákarnir frá Snæfellsnesi ;)

Drullu töff marh.. spila bara gólf... nenni ekki að vinna ;) hahahahaha 

Afmælisbarn: Hulda  

Saknað: Íris ;* 

Dansfélagi: 730 Stelpurnar ;) 

Staður: Neistaflug beibí ;)

 

 

Myndirnar koma í vikunni :) 
Þangað til næst
Margrét
:!:P.S:!:  litli bleikur er fundinn:!: :haha:

» 9 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 01:34:48 / margretsa

...What have I done...

Góða kvöldið :haha: 

Þetta var ein róleg helgi hjá mér... edrú og stilt :) 

Aron kom austur um daginn og gisti hérna 2 nætur og fór svo í bústað á Einarstöðum á föst :) Gulla kom á fös og Axel og þau gistu hérna 2 nætur og fóru svo aftur suður snemma á mán :) hitti þau því miður rosalega lítið þar sem ég var að vinna frá 9 – 17 og svaf svo bara eftir vinnu... þessi nýju ofnæmislyf eru bara rugl:!: hætt að taka þau:!:  tími ekki að sofa allan daginn eftir vinnu... engan veginn :/ 

En ég var í fríi á mán og þrið :haha: fór á Egs á mán og hitti Sigurveigu og Katríni eftir langan tíma:!: Sigurveig bauð mér út að borða þar sem ég á engan pening og það var bara æðislegt ;* takk ástin mín ;* Katrín var hress á mán eins og þessu ást er bara alltaf :haha:Gisti hjá Sigurveigu 2 nætur sem var bara æði :haha: veit ekki hvar ég væri án þín stundum ástin mín ;*   

Katrín átti 20 ára afmæli á laug :haha: til hamingju með það sæta ;* 

Beta átti 18 ára afmæli í dag (25.júlí) til hamingju með það ástin mín ;* 

Var að vinna í kvöld og afrekaði það að hella 2 LITLUM BJÓRUM yfir eina konuna:!:Vel gert:!: leið eins og fífli:!: svo töluðu þau endalausa þýsku og ég skildi ekki orð :P þýskan mín ekki alveg nógu góð :P en veit samt að þau voru að gera grín af mér:!: hehe mar finnur það bara á sér á svona stundum :P  

En ætla að fara að kvíla lúin bein... nudd væri vel þegið núna... er að drepast í bakinu... einhver????????????  

Okey eða ekki ;)  

Er svo að vinna 5 daga í röð núna frá 5 – 24 .. mjööög gaman.. 

Lögreglan er að rekja síman min :haha: jeijj :P er samt komin með nrið mitt aftur svo fólk getur náð í mig núna:haha: 

Einhver samt til í að vera laaaaaaang best/ur sem er að fara til útlanda á næstunni... ??? sú manneskja fær alla mína ást ;)

 

 

Elska ykkur stelpur ;* 
En vildi bara láta vita af mér ;) verð nú að gera það reglulega ;) 
Þangað til næst

Margrét


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 00:33:22 / margretsa

Lóóóneeeeeeeer!!!!!!!

!!!!!MYNDIR!!!!!  

Brúðkaupið hjá Almari bróðir

Fuerteventura, fyrsta sólar ferðin mín :haha:

Humarhátíð á Höfn 2007 :haha: 

Njótiði nú:!: 

Á samt eftir að segja myndirnar inn úr dýragarðinum og þeim degi :) ætla að hafa það sér :) finn kannski eina og eina aðra inn á milli þá hendi ég þeim bara inní :P 

Getið hætt að tuða núna ;) 

Allir á L.ung.A og ég sit heima að segja myndir á netið og á leiðinni í rúmmið... sad... einhver að bjarga mér úr þessu ;)  

Enginn hefur séð litla bleik... :(  einhver að fara út sem vill vera best/ur ????

 

 

Það er svona svört rispa á honum þarna... þekki alveg síman minn ef ég sé hann:!: helv:!:
Þangað til næst

Margrét


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Um mig
Dagsetning
10. febrúar 2012